Algengar spurningar
Hafðu samband
Our reception is open 24/7 and our staff is well-equipped taking care of our guests needs.
Ef það er eitthvað sérstakt sem við getum gerti fyrir þig eins og að bóka snemmbúna innskráningu, akstur eða borðapöntun á veitingastað okkar vinsamlegast hafðu samband – við erum þjónustu reiðubúin.
Teymið okkar er tilbúið að veita þér allar þær upplýsingar sem þú þarft til að geta bókað bílaleigubíl, túra eða aðra afþreyingu.
Vinsamlegast hafið samband með því að senda okkur póst á stay@kef.is eða hringja í síma 4207000 áður en þú kemur svo við getum haft allt klárt fyrir komu þína ef þú ert með einhverjar beiðnir.
Staðsetning
Okkar hótel er best staðsetta hótel landins
Við erum staðsett á Reykjanesskaganum sem er falleg náttúruperla og UNESCO Global Geopark. Erum í miðbæ Keflavíkur og rétt hjá útlöndum – aðeins 5 mínutna akstur frá KEF flugvelli, 15 mín akstri frá Bláa Lóninu og 40 mín frá Reykjavík.
Heimilisfang okkar:
Hótel Keflavík & Diamond Suites
Vatnsnesvegi 12-14
230 Keflavík
Ísland
Email: stay@kef.is
Síminn okkar er opinn allan sólarhringinn: (+354) 420 7000
Akstur upp á flugvöll
AKSTUR TIL OG FRÁ KEF FLUGVELLI TIL HÓTEL KEFLAVÍK
Akstur til og frá KEF flugvelli er ekki innifalið í gistingu
Við komu getur þú tekið leigubíl fyrir utan flugstöðina en þeir eru við allan sólarhringinn í tengslum við komuflug Ein ferð er ca. 3,500 kr.
FYRIRFRAM BÓKAÐUR LEIGUBÍLL SEM BÝÐUR KOMU ÞINNAR UPP Á FLUGVELLI
Viljir þú bóka leigubíl fyrirfram sem býður eftir þér við komu þína vinsamlegast hafðu samband við gestaþjónustu okkar með pósti stay@kef.is eða í síma 4207000 og láttu okkur fá flugupplýsingar þínar og komutíma.
Verð fyrir fyrirfram bókaðan leigubíl er 7.500 kr.
Innritun & útritun
Útritun er fyrir kl 11:00
Innritun er eftir kl 15:00
Þurfir þú á snemmbúnni innritun vinsamlegast hafðu samband við gestaþjónustu með pósti hjá stay@kef.is eða í síma 4207000 og við athugum hvort það sé möguleiki
Afbókunarskilmálar
Greiðslu/afbókunarfrestur er 7 dagar fyrir einstaklingsbókanir, 30 dagar fyrir hópa með færri en 20 herbergi og 60 dagar fyrir hópa með 20+ herbergi.
Annar akstur
FRÁ HÓTEL KEFLAVÍK Í BLÁA LÓNIÐ
besta leiðin frá hótelinu okkar í Bláa Lónið er með Blue Express. Verð er 6.500kr ein leið fyrir allt að 4 farþega en 8.500kr fyrir 5-8 farþega.
Bókaðu við komu
Gestir verða að tiltaka sérstaklega að þeir vilji ferðast með Blue Express þegar bókaður er leigubíll annars er gjaldið um 4-6000kr meira. aðra leið
Til að koma til baka frá Bláa Lóninu upp á hótel þá getur gestaþjónustan okkar aðstoðað þig við að bóka aksturinn á tilsettum tíma sem hentar þér.
FRÁ HOTEL KEFLAVÍK TIL REYKJAVÍKUR
Leigubíll:
Hægt að bóka í móttöku allan sólarhringinn. verð ca. 13-15.000 kr aðra leið fyrir 1-4 manns að degi til. 15.-20.000 kr að kvöldi eða nóttu til. Þú mátt búast við 20-30% aukningu á verði á hátíðar- eða frídögum.
Rúta #55:
Fer daglega frá kl 06:43-23:08 mánudaga til föstudaga en á laugardögum frá kl 07:08-23:08 8 og á sunnudögum og hátíðardögum frá kl 11:08-23:08
ca. 1,900 kr á mann aðra leið. Það þarf ekki að bóka fyrirfram.
Hér getur þú séð tímatöfluna www.straeto.is/en/timatoflur (velur Reykjanesbær/KEF flugvöllur).
Rútustoppustöðin í Keflavík (Miðstöð) er um 10 mín göngu frá hótelinu.
LÚXUSAKSTUR TIL OG FRÁ KEF FLUGVELLI AÐ HÓTEL KEFLAVÍK
Viljir þú bóka lúxusbílaþjónustu vinsamlegast hafðu samband og gefðu okur flugupplýsingar og komutíma og við bókum aksturinn. Verð er um 140 EUR fyrir 1-4 manns. Verð getur verið mismunandi eftir því hvaða bíll er laus.
Opnunartímar
Móttaka og gestaþjónusta
Opið allan sólarhringinn
Bakvinnsla og bókhald
Mánudaga til föstudaga frá kl 08:00-16:00
KEF Restaurant & Bar
Mánudaga til sunnudaga 11:30-22:00
Eldhús og herbergjaþjónusta er opin
Mánudaga til sunnudaga 21:00
KEF morgunverðarhlaðborð
Opið daglega frá kl 08:00-10:00
KEF Bar
Happy Hour alla daga frá 15:30-18:30.
Líkamsrækt & Sauna
LOKAÐ VEGNA ENDURBÓTA. VIÐ MUNUM OPNA FLJÓTLEGA MEÐ NÝRRI LÚXUS HEILSULIND OG LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ. FYLGSTU MEÐ