search
globe 1
BOOK NOW arrow-right 1

Gistiheimili Keflavík

Hlýlegt og þægilegt gistiheimili rétt hjá Keflavíkurflugvelli

Image Gallery

Hlýlegt og þægilegt gistiheimili rétt hjá Keflavíkurflugvelli

Velkomin á Gistiheimili Keflavík, notalegt og gestvænt gistiheimili staðsett á móti hinu þekkta Hótel Keflavík. Njóttu allra þæginda og þjónustu 4 stjörnu hótels nálægt Keflavíkurflugvelli með persónulegri og faglegri þjónustu sem lætur þér líða eins og heima.

 

Gisting
Gistiheimili Keflavík er staðsett á efri hæð á Vatnsnesvegi 9 og býður upp á fjölbreytta gistimöguleika: eitt einstaklingsherbergi, fjögur tveggja manna herbergi og eitt fjölskylduherbergi með koju sem rúmar allt að fjóra gesti. Tvö sameiginleg baðherbergi með sturtum eru til staðar og öll herbergi eru með minibar.

 

Þægindi og aðstaða
Gistiheimilið var endurnýjað árið 2019 og býður upp á nútímaleg og notaleg herbergi með nýjum rúmum, mjúkum sængum og góðum rúmfötum. Í öllum herbergjum er ókeypis þráðlaust net, sjónvarp, skrifborð, sími og auka handklæði – fullkomið hvort sem þú dvelur í eina nótt eða lengur.

 

Innifalið í dvölinni
Ókeypis internet, aðgangur að aðstöðu Hótel Keflavík og ókeypis bílastæði eru innifalin í dvölinni. Geymsla á bíl meðan dvalið er erlendis er einnig innifalið í gistingunni. Þó flugrúta sé ekki innifalin, getum við auðveldlega aðstoðað við að skipuleggja akstur til og frá Keflavíkurflugvelli ef þess er óskað.

 

Frábær staðsetning
Gistiheimili Keflavík er staðsett í hjarta Keflavíkur í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli, 15 mínútur frá Bláa lóninu og 40 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur – kjörin staðsetning fyrir ferðalanga.

 

Aðgangur að 4 stjörnu þjónustu Hótel Keflavík

Gestir á Gistiheimili Keflavík fá fullan aðgang að 4 stjörnu þjónustu Hótel Keflavík – þar á meðal glæsilegt morgunverðarhlaðborð sem er opið alla daga, notaleg sameiginleg rými hótelsins, 24/7 móttöku, glæsilegum veitingastað, kaffihús, vín- og kokteilbar og lúxus heilsulind og líkamsrækt.

 

Hvort sem þú ert í fríi, á leið erlendis eða viðskiptaerindum, þá býður Gistiheimili Keflavík upp á þægilega gistingu, frábæra staðsetningu og aðgang að allri þjónustu sem þú þarft á að halda.

Matur & Drykkur

Morgunverðarhlaðborð er í boði fyrir alla gesti á Gistiheimili Keflavíkur alla daga frá kl. 5:00 til 10:00 í morgunverðarsal Hótel Keflavík.

Skoða meira

 

Upplifðu það besta úr íslenskri matargerð á KEF Restaurant, vinsælasta veitingastaðnum í Keflavík og eftirsóttu vali þeirra sem leita að veitingastað nálægt Keflavíkurflugvelli. Njóttu einstaks andrúmslofts, faglegrar þjónustu og rétta sem eru eldaðir úr ferskustu íslensku hráefnum – með fjölbreyttu úrvali af aðalréttum og smáréttum fyrir persónulega matarupplifun.

 

Á daginn er Diamond Lounge notalegt kaffihús í hjarta Keflavíkur, en á kvöldin breytist það í glæsilegan vín- og kokteilbar með vönduðum vínum, sérblönduðum kokteilum og köldum bjórum á krana.

Skoða meira

KEF Spa & Fitness

Stígðu inn í heim vellíðunar sem á sér enga hliðstæðu - þar sem glæsilegt umhverfi og einstakar upplifanir bíða þín.

KEF_SPA_line

Akstur til og frá flugvelli

Akstur frá Keflavíkurflugvelli að Gistiheimili Keflavík

Akstur frá Keflavíkurflugvelli að Gistiheimili Keflavík er ekki innifalinn í verði herbergja.

Hægt er að taka leigubíl frá flugvellinum – þeir eru í boði allan sólarhringinn í samræmi við öll komuflug.

 

Pantaður leigubíll sem bíður við komu

Ef þú óskar eftir að leigubíll bíði eftir þér við komuna, vinsamlegast hafðu samband við móttökuna á stay@kef.is eða í síma (+354) 420-7000. Vinsamlegast sendu okkur eftirfarandi upplýsingar: Komudag, áætlaðan komutíma og flugnúmer.

 

Akstur frá Gistiheimili Keflavík að Keflavíkurflugvelli

Akstur til Keflavíkurflugvallar frá Guesthouse Keflavík er ekki innifalinn í verði herbergja.
Móttakan aðstoðar þig með ánægju við að panta akstur þegar þú mætir á staðinn og skráir þig inn.

 

Verð geta verið mismunandi eftir því hvaða leigubílafyrirtæki er notað.

 

Send Request

Akstur í Bláa lónið

Þægilegasta leiðin frá Hótel Keflavík í Bláa lónið er með Blue Express. Verð er 10.000 kr aðra leið fyrir allt að 4 pax. (Ath verðlagning getur breyst)

Bókaðu við komu á hótelið.

Gestir verða að biðja um Blue Express þegar þeir panta leigubílinn, annars verða farþegar rukkaðir af venjulegum leigubílamælum getur verið mismunandi verð.

Ef óskað er eftir akstri til baka frá Bláa lóninu getur móttakan aðstoðað við að panta akstur á fyrirfram ákveðnum tíma.

Send Request

Akstur til Reykjavíkur

Leigubíll

Hægt er að bóka leigubíl í móttöku allan sólarhringinn.

Strætó #55:

Ekki þarf að bóka fyrirfram.
Tímatöflu má finna á: https://www.straeto.is/en/route-planner/bus-kefairport

Send Request
kef

Meira en bara gisting

Gistiheimli Keflavík býður þægileg herbergi og aðgang að frábærri aðstöðu á Hótel Keflavík, þar á meðal morgunverðarhlaðborð og veitingar á KEF Restaurant.
Við leggjum okkur fram við að láta þér líða eins og heima.

Frá fjölskyldu okkar til þinnar

Verið velkomin á Gistiheimilið Keflavík – við vonum að þú njótir dvalarinnar.

kef

Upplýsingar um tengiliði
Gistiheimilið Keflavík á Hótel Keflavík
Vatnsnesvegur 9, efri hæð, 230 Reykjanesbæ, Íslandi
Móttakan: Hótel Keflavík hinum megin við Vatnsnesveg 12
Sími: +354 420-7000
Netfang: stay@kef.is
Vefsíða: https://www.kef.is/guesthousekeflavik