Morgunverðarhlaðborð
KEF Morgunverðarhlaðborð
Okkar glæsilega morgunverðarhlaðborð er opið daglega frá kl 05:00-10:00.
KEF morgunverður er margrómaður innanlands og utan og fá hótel á Íslandi sem bjóða uppá jafn vel útilátinn morgunverð og boðinn er daglega á Hótel Keflavík: margar sortir af smurðu brauði, skornum ávöxtum og grænmeti og kjötáleggi, egg, ostur og fjölbreytt úrval af brauði, kexi og kökum ásamt hefðbundnu morgunkorni og súrmjólk. Glúten-frítt brauð og mjólkurlausar mjólkurvörur eru til en þarf að biðja um.
Skyr og Lýsi eru ávallt í boði ásamt úrvali af heitum og köldum drykkjum eins og kaffi, te, kakó, mjólk og ávaxtasafa.
Heitir réttir eins og pylsur, bakaðar baunir, heitar samlokur og ofnréttir með osti, pylsum, eggjum og grænmeti eru bornir fram eftir kl. 08:00 en hlaðborðið opnar kl. 07:00 og er opið til kl. 10:00.
Morgunverðarbakkar til að taka með
Ef brottför þín er fyrir kl 05:30 þá þarftu ekki að hafa áhyggjur. Við getum útbúið morgunverðarbakka fyrir þig til að taka með þér árla morguns.
Morgunverðarbakkinn inniheldur samloku, ávöxt, djús og sætt brauðmeti.
Vinsamlegast bókið með dagsfyrirfara. Verð fyrir morgunverðarbakka er 1.500kr
Misstir þú af morgunverðinum?
Ef þú ákvaðst að sofa út og misstir af morgunverðarhlaðborði okkar getur þú pantað þér brunchdisk á KEF Restaurant eða Diamond Bar daglega frá kl 10:30-11:30.
Brunch diskurinn inniheldur egg, beikon, pylsu, bakaðar baunir, tómata, ristað brauð, skyr og ber. Verð er 1.950kr.
Hádegisverður er opinn daglega á KEF Restaurant frá kl 11.30-17:00.
Einka a la cart morgunverður
Við bjóðum upp á þann möguleika að fá fyrirfram bókaðan a la cart morgunverð í lokuðu einkarými á KEF Restaurant frá kl 06:00-10:00.
Við bjóðum upp á sérstakegan a la cart morgunverðarseðil með fjölbreyttu vali af ýmsum góðgætum. Vinsamlegast hafið samband við móttöku til að fá frekari upplýsingar.
Einka a la cart morgunverður er aðeins mögulegur ef hann er fyrirfram bókaður. Vinsamlegast tilkynnið móttöku hvenær þið viljið einkamorgunverðinn framreiddan. Einka a la cart morgunverður þarf að vera pantaður með sólarhringsfyrirvara og fer eftir framboði.
Verð er mismunandi eftir því hvað er valið á morgunverðarseðlinum.