Vor á Vatnsnesi
Í tilefni þess að Hótel Keflavík er 39 ára þann 17. maí ætlum við að gleðja bæjarbúa og aðra gesti með skemmtilegri dagskrá alla helgina 16.-18. maí. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

VOR Á VATNSNESI – DAGSKRÁ
Við fögnum 39 ára afmæli Hótel Keflavík með heilli helgi af list, tónlist, upplifunum og gleði fyrir alla fjölskylduna!
Vor á Vatnsnesi er nýr árlegur viðburður í Reykjanesbæ sem festir sig nú í sessi sem lítil bæjarhátíð – og verður bara stærri með hverju árinu!
Birt með fyrirvara um breytingar
Fimmtudagur 15. maí
- Konukvöld í KEF SPA & Kampavínskynning frá Kampavínsfjelaginu frá kl. 16:00 – bókanir á www.kefspa.is
- 25% afsláttur af gjafabréfum Hótel KEF í vefverslun og móttöku – www.kef.is
- Afmælismatseðill og kokteilaseðill í KEF Restaurant alla helgina
Föstudagur 16. maí
- Opnun listasýningar Eddu Þóreyjar Kristfinnsdóttur í Vatnsneshúsinu kl. 12:00–16:00
- Frítt inn í Duus Safnahús á sýningar Byggðasafns og jarðvangs alla helgina – sofn.reykjanesbaer.is/duushus
- 80’s Vibes í KEF SPA kl. 16:00–21:00 – bókanir á www.kefspa.is
- Kósýbandið spilar á KEF Restaurant kl. 18:00–21:00
- Afslættir og uppákomur í samstarfi við Samtökin Betri bæ: Skóbúðin, Marion, Galleri Keflavík, Bústoð, Zolo & Co, Reykjanesapótek, A4, Reykjanes Optikk og Brons
- 25% afsláttur af gjafabréfum Hótel KEF – www.kef.is
- Afmælismatseðill og kokteilaseðill í KEF Restaurant alla helgina
Laugardagur 17. maí
- Moët kampavínshlaup Hótel KEF kl. 11:00 – Skráning á www.kef.is
- Lúðrasveit Reykjanesbæjar leikur við verðlaunaafhendingu Moët hlaupins kl. 12:00
- Hoppukastalar við Vatnsneshús kl. 12:00–16:00 – Frítt fyrir öll börn!
- Matarvagnar frá Reykjavík Street Food við Vatnsneshús kl. 12:00–16:00
- Listasýning Eddu Þóreyjar Kristfinnsdóttur í Vatnsneshúsinu kl. 12:00–16:00
- Frítt inn í Duus Safnahús á sýningar Byggðasafns og jarðvangs alla helgina – sofn.reykjanesbaer.is/duushus
- Eurovision partý í KEF SPA kl. 19:00–23:00 – bókanir á www.kefspa.is
- Afslættir og uppákomur í samstarfi við Samtökin Betri bæ: Skóbúðin, Marion, Galleri Keflavík, Bústoð, Zolo & Co, Reykjanesapótek, A4 og Brons
- 25% afsláttur af gjafabréfum Hótel KEF – www.kef.is
- Afmælismatseðill og kokteilaseðill í KEF Restaurant alla helgina
Sunnudagur 18. maí
- Leikhópurinn Lotta og barnabröns í KEF –Bröns kl. 11:15 eða 13:15 og leiksýning kl 12:30 – bókanir á www.dineout.is/is/kef/event/kefvorbarnabrons
- Listasýning Eddu Þóreyjar Kristfinnsdóttur í Vatnsneshúsinu kl. 12:00–16:00
- Frítt inn í Duus Safnahús á sýningar Byggðasafns og jarðvangs alla helgina – sofn.reykjanesbaer.is/duushus
- Afslættir og uppákomur í samstarfi við Samtökin Betri bæ: Brons
- 25% afsláttur af gjafabréfum Hótel KEF – www.kef.is
- Afmælismatseðill og kokteilaseðill í KEF Restaurant alla helgina
Tilboð alla helgina (16.–18. maí):
- Listasýning Eddu Þóreyjar Kristfinnsdóttur í Vatnsneshúsinu kl. 12:00–16:00 daglega
- Frítt inn í Duus Safnahús á sýningar Byggðasafns og jarðvangs alla helgina – sofn.reykjanesbaer.is/duushus
- Afmælismatseðill og kokteilaseðill í KEF Restaurant – borðabókanir á www.kefrestaurant.is
- 25% afsláttur af gjafabréfum Hótel KEF (Deluxe, Svítu og Diamond pakkar) – www.kef.is/kefshop. Tilboð þessi gilda 12-25. maí
- Afslættir í verslunum Betri bæjar 16. og 17. maí – Skóbúðin, Marion, Galleri Keflavík, Bústoð, Zolo & Co, Reykjanesapótek, A4, Piccolo, Blómaskúr og Brons
Hér er dagskráin birt í heild sinni. Fyrir neðan getur þú séð upplýsingar um hvern og einn viðburð.

Konukvöld í KEF SPA & Kampavínskynning með Kampavínsfjelaginu
Fimmtudaginn 16. maí | Opið frá kl. 16:00 | Kampavínskynning kl. 17:00–18:30
Konur – þetta kvöld er algjörlega tileinkað ykkur! Við bjóðum til fyrsta konukvölds í KEF SPA þar sem dekur, afslöppun og kampavínsbubblur fara fullkomlega saman.
Spa-ið opnar kl. 16:00 og frá kl. 17:00–18:30 mætir Kampavínsfjelagið og leiðir okkur í gegnum smakkkynningu á kampavíni með fróðleik og fjöri – því ekkert segir „konukvöld“ eins og vel kælt kampavín í glasi og góðar vinkonur í sloppum.
Dásamlegt kvöld í KEF SPA:
- Aðgangur að öllu spa svæðinu
- Kampavínskynning með sérfræðingum
- Fordrykkur við komu
- Frábær stemning eingöngu fyrir konur
Aðgangur: 8.800 kr. á mann
Takmarkað pláss – bókaðu hér
Gríptu vinkonurnar, gleymdu stressinu og njóttu kvölds sem þú átt skilið – í glitrandi kampavínsstemningu KEF SPA!

Afmælismatseðill, kokteilar & afmæliskaka í KEF Restaurant
15.–18. maí
Matseðill frá kl. 17:00 | Kokteilar allan daginn
Í tilefni afmælishátíðar Hótel Keflavík býður KEF Restaurant upp á glæsilegan þriggja rétta afmælismatseðil á aðeins 11.900 kr. á mann. Hann verður í boði alla daga frá 15. til 18. maí eftir kl. 17:00 – tilvalið kvöld fyrir vinahópinn, fjölskylduna eða rómantískt stefnumót.
Alla dagana verður líka sérhannaður afmæliskokteilaseðill í boði – bæði á KEF Restaurant og í Diamond Lounge vín- og kokteilbarnum okkar.
Á afmælisdaginn sjálfan, 17. maí, bjóðum við upp á afmælisköku Hótel Keflavík á aðeins 2.900 kr. – fullkomin með kaffinu eða kokteilnum!
Pantaðu borð á www.kefrestaurant.is eða kíktu beint við í Diamond Lounge – við hlökkum til að fagna með þér!

Listasýning Eddu Þóreyjar í Vatnsneshúsinu
Vatnsneshúsið | 16.–18. maí | Opið kl. 12:00–16:00
Loksins hefur Vatnsneshúsið opnað dyr sínar! Frágangur utandyra er nú kláraður og næst tekur við innanhússuppbygging. Þó framkvæmdir þar séu ekki lokið, erum við svo spennt að hefja nýtt líf hússins að við vildum byrja að nota það strax – og það með listinni í forgrunni!
Við höfum því þann heiður að opna húsið með myndlistasýningu eftir Eddu Þóreyju Kristfinnsdóttur, sem opnar föstudaginn 16. maí kl. 12:00 og stendur til og með 18. maí. Opið verður daglega frá kl. 12:00–16:00.
Sýningin samanstendur af málverkum, vatnslitaverkum og skúlptúrum, þar sem ferðalag manneskjunnar, umhverfið og áhrif samtímans koma skýrt fram.
Edda Þórey, fædd í Reykjavík árið 1956, hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Hún vinnur verk sín í fjölbreytt efni og miðla – þar á meðal málverk, textaverk, ljósmyndir og myndbönd – þar sem frelsi og umbreyting eru henni hugleikin.
Verið hjartanlega velkomin að kíkja við og fagna með okkur – þetta er aðeins byrjunin á nýju og spennandi lífi Vatnsneshússins!

Kósýbandið á KEF Restaurant
Föstudaginn 16. maí | Kl. 18:00–21:00
Á föstudagskvöldið kemur Kósýbandið og skapar ljúfa stemningu á KEF Restaurant – þar sem gestir og gangandi geta notið tónlistar, matar og drykkjar í notalegu andrúmslofti.
Kósýbandið spilar rólega og skemmtilega tónlist sem hentar við öll tilefni. Hljómsveitin samanstendur af þeim Arnóri Sindra, Hjördísi Rós, Hildi Bjarney og Birnu, sem saman mynda hlýja og lifandi tónlistarstund fyrir alla sem mæta.
Komdu og njóttu kósýkvölds með okkur – borðapantanir á www.kefrestaurant.is eða bara kíktu við!

80’s Vibes í KEF SPA
Föstudaginn 16. maí | Kl. 16:00–21:00
Farðu nokkur ár aftur í tímann – alla leið til 1986, þegar Hótel Keflavík var stofnað! KEF SPA mun breytast í sannkallaða 80’s upplifun með stemningu sem minnir á gullaldaráratuginn:
- Ljúf og góð 80’s tónlist
- Skemmtilegir kokteilar í anda áratugarins
- Spa með retro-stemningu og afslöppun í forgrunni
Það er fátt meira viðeigandi en að fagna afmælinu með því að stíga aftur til ársins sem þetta allt hófst – og njóta í nútímalegu lúxusumhverfi KEF SPA.
Bókaðu þér tíma hér og njóttu afslappaðrar og skemmtilegrar kvöldstundar með 80’s yfirbragði.

Hoppukastalar við Vatnsneshúsið
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Það verður líf og fjör við Vatnsneshúsið á laugardaginn þegar Kastalar.is mæta með hoppukastala og gleði fyrir börnin! Frá kl. 12:00–16:00 geta börn á öllum aldri komið og hoppað, leikið og skemmt sér – og það kostar ekki neitt.
Þetta er gjöf frá Hótel Keflavík til allra barna – því ekkert gleður okkur meira en að sjá þau hlæja og hafa gaman saman.
Frábær fjölskyldustund sem hluti af afmælisdagskrá Hótelsins – öll börn eru hjartanlega velkomin!

Moët kampavínshlaup Hótel KEF
17. maí | Kl. 11:00 | Vatnsnestún
Taktu þátt í skemmtilegustu 5 km gleðistund ársins – Moët kampavínshlaupinu á Hótel Keflavík, haldið í tilefni hátíðarinnar Vor á Vatnsnesi!
Hlaupið hefst kl. 11:00 við Vatnsnestún, en upphitun og stemning hefst kl. 10:30 – og það borgar sig að mæta tímanlega! 🏃♀️🏃♂️
Þetta er ekki hefðbundið hlaup – á leiðinni verður kampavíns-drykkjarstöð þar sem þátttakendur geta skálað og svalað þorstanum. Í markinu bíða medalía, veglegur gjafapoki og verðlaun fyrir þrjú efstu sætin – auk fjölda glæsilegra útdráttarverðlauna!
Að hlaupi loknu heldur gleðin áfram við Vatnsneshúsið:
- Hoppukastalar (frítt fyrir börnin)
- Matarvagnar frá Reykjavík Street Food
- Listasýning Eddu Þóreyjar Kristfinnsdóttur
- Lúðrasveit Reykjanesbæjar spilar við verðlaunaafhendingu
- Happy Hour á Diamond Lounge fyrir hlaupara til kl. 18:30!
Verð: 1.000 kr. á þátttakanda
Skráning er skilyrði – takmarkað pláss og aðeins fyrir 21 árs og eldri.
Skráðu þig hér: kef.is/is/product/moethlaupid
Tilvalið tækifæri til að sameina hreyfingu, gleði og Moët glaðning í glasi.
Takk fyrir okkur

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti, auk þess sem dregnir verða út nokkrir heppnir happadrættisvinningar. Að loknu hlaupi fá allir þátttakendur verðlaunapening og veglegan gjafapoka.

Lúðrasveit Reykjanesbæjar spilar við verðlaunaafhendingu
Laugardaginn 17. maí | Strax eftir Moët kampavínshlaupið | Við Vatnsneshúsið
Við verðlaunaafhendingu Moët kampavínshlaupsins stígur á svið engin önnur en Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og setur tóninn með krafti og gleði!
Lúðrasveitin, sem samanstendur af hæfileikaríkum ungmennum úr bænum, er um þessar mundir að undirbúa sig fyrir tónlistarferð til Spánar í júní. Þar munu þau taka þátt í samspili með öðrum lúðrasveitum, bæði í skrúðgöngum og á kvöldtónleikum.
Við erum stolt af því að fá þau til að leika fyrir hlaupara og gesti – og fagna með tónlist á þessum skemmtilega og líflega degi.

Matarvagnar frá Reykjavík Street Food
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00 | Við Vatnsneshúsið
Það verður ilmur af góðum mat og sannkölluð götubita-stemning við Vatnsneshúsið laugardaginn 17. maí þegar Reykjavík Street Food mætir með sína vinsælu matarvagna! Frá kl. 12:00–16:00 geta gestir nælt sér í fjölbreyttan og spennandi mat – beint af götunni og inn í hátíðina.
Reykjavík Street Food er leiðandi á Íslandi þegar kemur að götubita og matarvögnum, og stendur fyrir fjölmarga viðburði um allt land.
Komdu svangur og fáðu þér eitthvað gott á meðan hátíðin heldur áfram með hoppuköstulum, listasýningu, tónlist og góðri stemningu allt í kring.

Eurovision partý í KEF SPA
Laugardaginn 17. maí | Kl. 19:00–23:00
Komdu í fyrsta Eurovision-partýið í KEF SPA og upplifðu keppnina eins og aldrei fyrr – í heitum pottum, snjóherberginu, gufubaði og með góðan kokteil í hendi!
Við sýnum Eurovision í beinni, bjóðum upp á litríka og skapandi kokteila í Eurovision-þema, og berum fram pinnarétti fyrir gesti meðan kvöldið rennur upp í alvöru hátíðarstemningu.
Verð: 12.800 kr. á mann
Pinnaréttir verða bornir fram milli kl 19:00-20:00
Takmarkað pláss – tryggðu þér miða hér
Bættu þessari upplifun í gleðibankann – þetta er Eurovision kvöld sem fær pottþétt 12 stig!

Leikhópurinn Lotta & barnabröns í KEF Restaurant
Sunnudaginn 18. maí | Leiksýning kl. 12:30 | Bröns kl. 11:15 & 13:15
Við bjóðum ykkur í einstakt ævintýri fyrir alla fjölskylduna þegar Leikhópurinn Lotta mætir í Gyllta salinn á Hótel Keflavík með sýninguna Söngvasyrpu – lifandi og glaðvært atriði úr Ævintýraskógi Lottu, fullt af sprelli, söng og fjöri fyrir börn á öllum aldri!
Leiksýningin hefst kl. 12:30
Bröns í KEF Restaurant er í boði annaðhvort fyrir eða eftir sýningu:
- Kl. 11:15
- Kl. 13:15
Verð:
13 ára og eldri: 5.900 kr.
6–12 ára: 3.500 kr.
5 ára og yngri: borða frítt!
Athugið! Borðabókun er nauðsynleg til að tryggja pláss á bæði sýningu og bröns.
Bókaðu á bit.ly/vorbarnabronskef
Komdu með fjölskylduna í töfraheim Lottu og njóttu girnilegs bröns á sama tíma – Höfum gaman saman á KEF.

Afslættir og gleði um allan bæ
Í tilefni af afmælishátíð Hótel Keflavík 16.–18. maí bjóða vinir okkar úr Samtökunum Betri bæ upp á glæsilega afslætti víðsvegar í Reykjanesbæ. Þetta er frábært tækifæri til að styðja við verslun í heimabænum og gera góð kaup í leiðinni!
- Skóbúðin – 20% afsláttur af öllum skóm (16. og 17. maí)
- Marion Herrafataverslun – 20% afsláttur af öllu í verslun (16. og 17. maí)
- Galleri Keflavík – 20% afsláttur af öllu (16. og 17. maí)
- Bústoð – 20% afsláttur af allri gjafavöru og 10–30% afsláttur af húsgögnum frá Furnhouse (16. og 17. maí)
- ZOLO & CO – 20% afsláttur af öllum vörum (16. og 17. maí)
- Reykjanesapótek – 20% afsláttur af snyrtivörum og sokkabuxum (16. og 17. maí)
- A4 Reykjanesbær – 20% afsláttur af ferðavörum (16. og 17. maí)
- Piccolo – 20–50% afsláttur af öllu í búðinni (16. og 17. maí)
- Blómaskúrinn – 20% afsláttur af allri gjafavöru (16. og 17. maí)
- Brons – 20% afsláttur af mat og pílu + skemmtileg dagskrá í gangi alla helgina!
- Reykjanes Optikk – 25% aflsáttur af öllu. Auka par af margskiptum glerjum fylgir Zeiss margskiptu glerjunum. (16. – 23. maí)
- Blómahús Mögdu bíður 20% afslátt af inniplöntum (16-18. maí)
- Fjóla Gullsmiður er með 20% afslátt af öllum vörum 16.-17. maí og svo skemmtilegan útimarkað á laugardeginum 17. maí
Um Samtökin Betri bæ
Betri bær er sameiginlegur vettvangur fyrirtækja í Reykjanesbæ sem vinna saman að því að efla verslun, þjónustu og samkeppnishæft rekstrarumhverfi í bænum.
Markmiðið er að halda viðskiptum í heimabyggð og skapa öflugan og fjölbreyttan grunn fyrir framtíðina – þar sem gæði, samvinna og bæjarandinn ráða för. Sjá nánar á www.facebook.com/betribaerreykjanesbaer
Við þökkum fyrirtækjunum kærlega fyrir þátttökuna og ykkur fyrir að versla heima.
Tökum þátt, styðjum við bæinn og fögnum saman um helgina!

Frítt í Duus Safnahús alla afmælishelgina
16.–18. maí bjóðast gestum frítt inn í Duus Safnahús þar sem hægt er að skoða sýningar Byggðasafns Reykjanesbæjar og Gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs.
Duus Safnahús eru lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar og hýsa sýningarsali Listasafns og Byggðasafnsins ásamt gestastofu jarðvangsins. Húsin sjálf eru söguleg, reist á 19. öld og endurbyggð með virðingu fyrir uppruna sínum. Safnið stendur við sjóinn í gamla bænum – umlukið menningu, náttúru og sögu.
Nánari upplýsingar og opnunartímar:
sofn.reykjanesbaer.is/duushus

25% afsláttur af völdum gjafabréfum Hótel KEF í tilefni þess að við erum 39 ára!
Í tilefni af afmælishátíð Hótel Keflavík bjóðum við 25% afslátt af vinsælustu gjafapökkunum okkar: Deluxe, Svítu og Diamond. 10% afslátt af öðrum gjafabréfum. Gildir á netinu og í móttöku. Tilboð gilda 12.-25. maí
Pakkarnir innihalda:
- Glæsilega gistingu fyrir tvo
- Þriggja rétta máltíð í KEF Restaurant
- Ríkulegan morgunverð
- Aðgang að lúxusheilsulind KEF SPA & Fitness
Gjafabréfin má versla beint í KEF SHOP á www.kef.is/shop eða í móttöku hótelsins.
Fullkomin gjöf fyrir þá sem þú vilt dekra – eða bara fyrir sjálfa(n) þig!

Deluxe Experience - Deluxe Room, Dinner, and Wellness
Stay in a deluxe room with breakfast for two, a three-course adventure at KEF Restaurant, and a luxury experience at KEF SPA & Fitness.
61.050 kr.
Add to Basket
Suite Experience - Junior Suite, Dinner, and Wellness
Stay in a junior suite with breakfast for two, a three-course adventure at KEF Restaurant, and a luxury experience at KEF SPA & Fitness.
66.675 kr.
Add to Basket
Diamond Experience - Luxury Suite, Dinner and Wellness
Luxury suite stay in Diamond Suites with breakfast for two, a three-course adventure at KEF Restaurant, and a luxury experience at KEF SPA & Fitness.
108.300 kr.
Add to Basket