Bríet x KEF SPA

19.800 kr.

Bríet x KEF SPA

Persónulegir og kósý tónleikar með Bríet í KEF SPA, föstudagskvöldið 13. febrúar

 

Description

Bríet x KEF SPA

Persónulegir tónleikar með Bríet í KEF SPA, föstudagskvöldið 13. febrúar

Bríet er einn áhugaverðasti flytjandi og höfundur íslenskrar tónlistar í dag. Með einstaka blöndu af kraftmikilli útgeislun, hrífandi textum og sálríkri rödd nær hún að heilla áhorfendur hvert sem hún fer. Bríet er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu, þar sem hún nýtur þess að tengjast áhorfendum og skapa ógleymanlega upplifun.

Sviðið í þetta skiptið verður KEF SPA. Þar ætlar Bríet að halda litla og nána tónleika ásamt góðum vini sínum og hljómborðsleikara Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Hvort sem Bríet er að stíga á svið í litlu kaffihúsi eða á stóru sviði, þá er eitt víst – hún lætur engan ósnortinn.

KEF SPA er ekki aðeins staður fyrir vellíðan og endurnæringu, heldur einnig einstakt rými fyrir valda menningarviðburði. Með því að bjóða upp á tónleika í nánu og fáguðu umhverfi sameinar KEF SPA tónlist, stemningu og vellíðan í heildstæða upplifun fyrir takmarkaðan fjölda gesta. Hér mætast list og lúxus á eðlilegan og hlýlegan hátt.

 

Verð: 19.800 kr. á mann

Innifalið:

  • Tónleikar með Bríet í nánu umhverfi
  • Aðgangur að KEF SPA & Fitness með slopp, inniskóm og handklæði, ásamt Blue Lagoon snyrtivörum í fataklefa
  • Léttir réttir frá KEF Restaurant
  • Drykkjatilboð á Versace Bar

Dagskrá:

  • 18:30 Húsið opnar. Drykkjatilboð á Versace Bar í boði allt kvöldið
  • 19:00 Léttir réttir frá KEF Restaurant
  • 20:30 Bríet stígur á svið
  • 23:00 Húsið lokar

Aðeins 40 miðar eru í boði og mælum við með að tryggja sér sæti tímanlega. Forsala er í boði eingöngu fyrir KEF SPA meðlimi.

Við bókun vinsamlegast tilgreinið hvort nota eigi kvenna- eða karlaklefa. Aldurstakmark er 20 ára. Gjafabréf gilda ekki fyrir þennan viðburð. Fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð má hafa samband á spa@kef.is

Bríet x Hótel KEF – sértilboð fyrir tónleikagesti

Tónleikagestum Bríetar í KEF SPA 13. febrúar býðst einstakt gistitilboð á Hótel KEF.
Tveggja manna herbergi með morgunverði á 21.800 kr. eða Deluxe herbergi á 24.800 kr. fyrir tvo.

Tilboðið gildir eingöngu fyrir tónleikagesti 13. febrúar.
Til að bóka sendið tölvupóst á stay@kef.is og sýnið fram á miðakaup við bókun.

Viðbótarupplýsingar

Kyn

Karlaklefi, Kvennaklefi