search
globe 1
BOOK NOW arrow-right 1

Tónleikar með Bríet í KEF SPA

Föstudagskvöldið 13. febrúar

Bríet x KEF SPA
Persónulegir tónleikar með Bríet í KEF SPA, föstudagskvöldið 13. febrúar

Bríet er einn áhugaverðasti flytjandi og höfundur íslenskrar tónlistar í dag. Með einstaka blöndu af kraftmikilli útgeislun, hrífandi textum og sálríkri rödd nær hún að heilla áhorfendur hvert sem hún fer. Bríet er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu, þar sem hún nýtur þess að tengjast áhorfendum og skapa ógleymanlega upplifun.

Sviðið í þetta skiptið verður KEF SPA. Þar ætlar Bríet að halda litla og nána tónleika ásamt góðum vini sínum og hljómborðsleikara Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Hvort sem Bríet er að stíga á svið í litlu kaffihúsi eða á stóru sviði, þá er eitt víst – hún lætur engan ósnortinn.

KEF SPA er ekki aðeins staður fyrir vellíðan og endurnæringu, heldur einnig einstakt rými fyrir valda menningarviðburði. Með því að bjóða upp á tónleika í nánu og fáguðu umhverfi sameinar KEF SPA tónlist, stemningu og vellíðan í heildstæða upplifun fyrir takmarkaðan fjölda gesta. Hér mætast list og lúxus á eðlilegan og hlýlegan hátt.

Bókaðu upplifun þína hér: www.kef.is/is/product/briet

couple in hot tub in kef spa hotel keflavik iceland

Hvað er innifalið í viðburðinum

Verð:
19.800 kr. á mann

Innifalið:

Tónleikar með Bríet í nánu umhverfi
Aðgangur að KEF SPA & Fitness með slopp, inniskóm og handklæði, ásamt afnot af Blue Lagoon snyrtivörum í fataklefa
Léttir réttir frá KEF Restaurant
Drykkjatilboð á Versace Bar

Dagskrá:

18:30 Húsið opnar. Drykkjatilboð á Versace Bar í boði allt kvöldið
19:00 Léttir réttir frá KEF Restaurant
20:30 Bríet stígur á svið
23:00 Húsið lokar

Aðeins 40 miðar eru í boði og mælum við með að tryggja sér sæti tímanlega. Forsala er í boði eingöngu fyrir KEF SPA meðlimi.

Við bókun vinsamlegast tilgreinið hvort nota eigi kvenna- eða karlaklefa. Aldurstakmark er 20 ára. Gjafabréf gilda ekki fyrir þennan viðburð. Fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð má hafa samband á spa@kef.is

Bókaðu upplifun þína hér: www.kef.is/is/product/briet

Sértilboð fyrir tónleikagesti

Njóttu á Hótel KEF

  • Tveggja manna herbergi með morgunverði fyrir tvo á aðeins 21.800 kr.
  • Deluxe herbergi með morgunverði fyrir tvo á aðeins 28.800 kr.

Tilboðið gildir eingöngu fyrir tónleikagesti 13. febrúar.

Bókanir hjá stay@kef.is