KEF SPA fagnar 1 árs afmæli
KEF SPA & Fitness afmælisfögnuður 20. – 26. október
KEF SPA & Fitness fagnar 1 ári!
Það er ótrúlegt að ár sé liðið frá opnun KEF SPA & Fitness á Hótel KEF – fyrstu heilsulind Reykjanesbæjar sem hefur á einu ári orðið eftirsóttur áfangastaður fyrir afslöppun, endurnýjun og einstakar upplifanir. Við höfum fengið ómetanleg viðbrögð og þakklæti frá gestum og fyrsta árið hefur gengið vonum framar.
Í tilefni afmælisins bjóðum við til afmælisviku á Hótel KEF og KEF SPA dagana 20. – 26. október, með skemmtilegum viðburðum og freistingum.
Komdu og fagnaðu með okkur!
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við spa@kef.is eða 420 7007
Dagskrá afmælisvikunnar:
-
24. október: Gordjöss á KEF – Páll Óskar tónleikar í KEF SPA!
-
20.–23. október: 2 fyrir 1 í KEF SPA með kóðanum BDAY
-
20.-26. október: Afmæliskaka með blysi á KEF Restraurant á aðeins 2.800 kr.
-
20.-26. október: Skemmtilegir afmæliskokteilar með KEF SPA þema á KEF Restaurant og Diamond Lounge
Gordjöss á KEF – Páll Óskar tónleikar í KEF SPA
24. október
Við fögnum 1 árs afmæli KEF SPA & Fitness með sannkölluðu gleðikvöldi – þegar sjálfur Páll Óskar skemmtir gestum í töfrandi andrúmslofti KEF SPA!
Kvöldið hefst með freyðivíni við komu og léttum veitingum frá veisluþjónustu KEF Resturant. Herðanudd í pottunum fyrir þá sem vilja frá okkar frábæru nuddurum í KEF SPA. Skemmtilegur „Palla kokteilaseðill” og kampavínstilboð gera kvöldið enn betra.
Miðaverð: 16.800 kr. – athugið takmarkað sætaframboð og 20 ára aldurstakmark.
Húsið opnar kl. 18:00 | Léttar veitingar framreiddar milli kl. 18:30 – 19:30 | Páll Óskar mætir kl. 20:00
KEF SPA verður opið til kl. 23:00
Smelltu hér til að bóka miða á Gordjöss á KEF með Páli Óskari.
Gordjöss gistitilboð á Hótel KEF:
Tveggja manna herbergi með morgunverði á aðeins 25.800 kr.
Gildir 24. – 25. október aðeins fyrir viðburðargesti. Bókanir: stay@kef.is
50% afsláttur í KEF SPA
20. – 23. október
Í tilefni þess að KEF SPA & Fitness er 1 árs viljum við bjóða öllum 50% afslátt að KEF SPA aðgangi í heilsulind okkar og líkamsræktarstöð. Komdu og njóttu rétt hjá útlönfum.
Bókaðu með kóðanum BDAY til að fá 50% afslátt með því að smella hér.
Afmæliskaka með blysi
20.-26. október
Afmæliskokteilar á KEF
20. – 26. október
Til að fagna fyrsta afmælisári KEF SPA höfum við skapað sérstaka kokteilaupplifun á KEF Restaurant & Diamond Lounge.
Alla vikuna verður hægt að njóta KEF SPA innblásinna kokteila – Art of Luxury, Foam Me Up, Versace Gimlet og Cold Therapy Margarita – hannaða til að fanga upplifun KEF SPA í hverjum sopa.