Velkomin á Hótel Keflavík rétti staðurinn við flugvöllinn
Hótel Keflavík er fyrsta flokks hótel í miðbæ Keflavíkur. Það hefur þótt kærkominn dvalarstaður fyrir þá sem vilja hvílast vel áður en haldið er af stað til annarra landa. Þaðan er aðeins um fimm mínútna akstur að flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Glæsilegur morgunverður er veittur árla morguns fyrir gesti hótelsins sem þurfa að fara snemma í flug og er þeim síðan boðinn akstur á flugstöðina og geymsla á bílnum meðan dvalið er erlendis endurgjaldslaust. Frá Hótel Keflavík er boðið uppá ferðir í Bláa Lónið daglega yfir sumatímann.
Hótel Keflavík er rétti staðurinn, hvort sem um er að ræða fyrir árshátíðina eða fundinn. Hægt er að velja milli salarkynna Sólsetursins, Café Iðnó eða fundarsala á fyrstu hæð hótelsins. Café Iðnó er glæsilegur veitingastaður og bar.

Íslander - 1 minute trailer from Inspired By Iceland on Vimeo.